já, þá er ég komin "heim" aftur, eftir heimsókn heim. haha

helgin var alveg ótrúlega mikið góð, ég er allavega mjög sátt með hana. ég nenni ekki að segja e-r díteil, ætla að koma með smá punkta bara:
- fór á fimleikaæfingu sem mér fannst svoooo mikið gaman!! gekk alveg ágætlega og fann hvað ég sakna fimleikanna geðveikt mikið svo ég get ekki beðið eftir að byrja aftur! var að vísu með svo brjálaðar harðsperrur næstu 5 daga að ég gat varla gengið en það var svo sannarlega þess virði!

- fór til augnlæknis í von um að fá lesgleraugu þar sem ég er alveg hætt að sjá nokkuð í skólanum þegar kennararnir eru með skjávarpasýningar á glósum t.d.. fékk samt að vita að ég væri ekki með nógu slæma sjón ennþá en ætti að fylgjast með því hún myndi sennilega versna, sérstaklega ef ég væri mikið í tölvu og að lesa. (sem er pretty much það eina sem ég geri, haha) er allavega aðeins nærsýn eða fjærsýn, get aldrei munað þetta, er með mínus 0.25 öðru megin og mínus 0.5 hinu megin held ég
- fór á leiksýningu hjá mömmu, "Með táning í tölvunni" og vá, þetta er leikrit sem er hægt að mæla með! síðasta sýning á föstudaginn svo þeir sem hafa ekki séð þetta skulu endilega skella sér, það er hægt að lofa miklum hlátri og úrvals skemmtun! mér fannst það allavega, samt finnst mér alltaf smá kjánalegt að horfa á fjölskyldumeðlimi mína leika en ég tók ekkert eftir því í þetta skiptið. meira að segja hún Anna sem kom með mér og er sænsk, skemmti sér mjög vel og hló, þó hún hefði ekki skilið nema aðalplottið.
- ég dæmdi Bikarmótið í fimleikum á laugardaginn og það gekk ótrúlega vel, Selfoss HM-1 sem ég var að æfa með urðu í 2. sæti sem var frábært, þær stóðu sig ekkert smá vel!

ég var rosa montin, híhí
- fór í ótrúlega góðan mat hjá mömmu á laugardagskvöldið og fékk einhver komment um að ég væri ekki mjög smekkleg við matarborðið, en ég meina kommon, ef bitinn sem maður fær sér er bara alltof alltof heitur, er þá ekki eina ráðið að taka hann aftur úr munninum, nema maður vilji brunasár á tunguna? ég hefði kannski mátt nota dannaðri aðferð en ég notaði en hey, that's just me.. haha. horfði svo aðeins á laugardagslögin þarna og guð hvað ég var ánægð að hey og ho lagið komst ekki áfram, mér fannst hún laglausari en ég veit ekki hvað og Gillzenegger er bara einn sá bjánalegasti. er sæmilega sátt með This is my life, er allavega mjög eurovision legt.
- svo var það þetta tíbíska bara, rúntinn, fara í bæinn, læra, hanga með pabba og kisa, hitta vinina og borða laugardagsnammi. fór reyndar 2x í bíó, á Untraceable sem var GEÐVEIK og ég mæli mikið með, ég var svo spennt að ég pissaði næstum á mig og á Step Up 2 sem var ágæt, fannst númer 1 samt svo mikið mikið betri. er líka nýlega búin að sjá Jumper sem var svona lala, stóð ekki undir væntingum og P.S. I Love You sem mér fannst góð, reyndar var ég kannski búin að gera mér aðeins of miklar vonir því ég var búin að heyra að hún væri svo sjúklega frábær en mér fannst hún bara svona frekar mikið góð
...annars er þessi vika bara skóli, vinna, vinna, vinna, próf og leiðindi svo ég er ekkert að hlakka neitt mikið til næstu 5 daga. en ég meina, horfa á björtu hliðarnar, ég verð vonandi rík og gáfuð fyrir vikið

haha. ég held það sé ekkert markvert búin að ské síðan ég kom norður, bíllinn minn er drullugri en allt í heiminum en ég ætla að bíða fram á mánudag með að þrífa hann af því þá er ég búin að fá útborgað, hehe. ég datt í hálkunni í fyrradag og varð frekar pirruð en fannst það samt smá fyndið, vona bara að enginn hafi séð það en þetta var þegar ég var rétt komin yfir götuna fyrir framan skólann svo það er ekkert ólíklegt að það hafi einhver flissað aðeins af mér

en ég held ég láti þetta duga, er orðið ansi langt..
Þangað til næst - Bergþóra Selfyssingur


Einar, Siggi & ég á föstudaginn þegar ég kíkti fyrir utan FSu ballið, haha.. þeir aðeins í því og í góðum göllum og ég lít út fyrir að vera nýkomin úr jaxlatöku, er eins og hamstur

haha