Pældu í því..! ;)

Litli hugarheimurinn hennar Bergþóru..

23.01.2008 22:53:07 / Bergþóra

Lækna njúvs

Já, ég fór til doksa í gærdag af því að örið varð allt alveg grjóthart og asnalegt eftir að ég gerði örlítið þrek í síðustu viku og mér fannst það ekkert rosalega eðlilegt. Ég hitti á leiðinlegasta og persónuleikalausasta lækni sem ég hef á ævi minni fyrirfundið! Hann sagði að af því að hann vissi ekkert hvað hefði verið gert í aðgerðinni, þá gæti hann ekkert sagt mér, ég ætti bara að hringja í skurðlækninn minn og fá svör hjá honum! Ég persónulega er nú ekkert mjög viss um að hann gæti svarað mér svona í gegnum símann og ekki gæti hann skoðað mig þar sem ég er 450 km í burtu frá honum!.. Ég náði þó að veiða uppúr lækninum að þetta liti ekkert illa út og bólgan gæti verið uppí marga mánuði, sérstaklega ef ég hefði nú rifið eitthvað upp þarna fyrir innan. Hann sagði mér að geyma allt þrek í 2 vikur svo eftir 2 vikur ætla ég að reyna að koma mér á fimleikaæfingu, o gosh! ;)

Ég er byrjuð að þjálfa, sem er bara ótrúlega næs :D Ég er að aðstoða við að þjálfa 2 strákahópa sem eru mestu krútt í heimi og aðalþjálfarinn þeirra er líka alveg frábær. Ég er mjög sátt og á von á meiri þjálfun svo ég bíð bara spennt.

Ég get ekki neitað því að ég er með netta heimþrá og hlakka ekkert smá til að fara suður í heimsókn, tala nu ekki um í vetarfríinu í skólanum og um páskana, vá hvað ég get ekki beðið! :) Akureyri er alveg fínasti staður og ég er alveg sátt við skólann, vinnuna og allt það en mér finnst ég engan veginn eiga heima hérna, ekki mitt herbergi, ekki mitt rúm, fjölskyldan mín og vinirnir eru af skornum skammti hérna o.s.frv. Ég er samt alveg jafnspennt fyrir því að fara til DK í sumar og var einmitt að breyta umsókninni minni áðan, þar sem mér var að bjóðast mögulegt húsnæði í Århus í sumar og ég held að það gæti aukið möguleikana mína á jobbi:)

Ég hentist með bílinn uppá Toyota verkstæði áðan þar sem hann er farinn að gefa frá sér eitthvað geðveikislegt bíb þegar ég keyri hann hægt og e-ð vesen en þeir hristu bara hausinn og vissu ekkert hvað var í gangi og báðu mig um að koma næst þegar að þetta hljóð kæmi. Því miður kemur það yfirleitt bara þegar ég er að rúnta á kvöldin svo ég verð að kíkja á rúnt yfir daginn á morgun eða hinn í von um að þetta hljóð komi :P hehe..

En ég hef svosem ekkert meira að segja..

Þangað til næst - Bergþóra með heimþrá


alltaf gaman í galtalæk, hehehe.. '04 held ég

ps. ég er að fara í mína fyrstu snjóbrettakennslustund á morgun.. 90% líkur á að ég komi með í gifsi á e-m líkamshluta ;)!!

Heimir Snær skrifaði
mæli eindregið með nýjum lækni.. ætla að gerast soft og segja þér að ég sakna þín:(.. ooooog þú átt poootttþétt eftir að höfuðkúpubrotna á brettinu, þannig að ég segi bara góðann og skjótann bata!;)
mamma skrifaði
Farðu varlega ástarengill í fjallinu...Það eru margir góðir læknar á Akureyri, biddu afa að finna góðan lækni til að tala við, ekki gáfulegt að geyma þetta til vors. Hlakka til að sjá þig og knúsa í vetrarfríi! Ástar og saknaðarkveðjur frá mömmu ps. Heimir, það er bannað að segja svona, hún er úr fjölskyldu sem á það til að taka svona bókstaflega!!!!
Gulla skrifaði
:D Ég og vinkonur mínar erum að fara suður í vísindaferð næsta fimmtudag og erum að spá í að keyra suður(ef veður leyfir) og það verður örugglega pláss í bílnum fyrir þig ef þig langar að koma með ;D Verðum þá fram á þriðjudag (5.feb).
Sæli skrifaði
Ég myndi nú segja að snjóbretti sé ekkert mál, hef ekki mikla reynslu af þessu eeeen því hraðar sem maður fer því fyrr er maður kominn niður? eða hvað,spurning hverju maður lendir á niðri... en það er seinnitímavandamál:D
Sigfríður;** skrifaði
Sko bergþóra mín;*. Bretti er stóórhættulegt;D ég hef farið alveg 2svar:D. haha en ég sakna þín alveg ógeðslega og langar geðveikt að fá þig heiim;*. Svo er það Dk í sumarx)
Bergþóra skrifaði
Heimir: Já, ég er að vinna í nýjum lækni ;D Mamma: Hlakka líka til að sjá þig !! :* Gulla: Já, takk æðislega fyrir boðið en ég er að fara suður einmitt þessa helgi með vinkonum mínum ;) Sæli: hahaha, einmitt, mér tókst t.d. að lenda á griðingu en það var skemmtilegt :D Sigfríður: Já, það er sko stórhættulegt á þessu drasli, ég er með 4 marbletti á rassinum !!.. Og ég sakna þín líka ;*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 79812
Klukkan
Könnun
Er óvenjulegt að telja tærnar á sér í hvert skipti sem maður fer í sokka?