Pældu í því..! ;)

Litli hugarheimurinn hennar Bergþóru..

27.07.2005 10:27:08 / Bergþóra

R.I.P.

Jæja, þessi síða er formlega komin í pásu.. Hversu lengi er ekki vitað né hvort hún verður tekin í notkun aftur.. Það er því með sorg í hjarta sem ég hætti að blogga og já blablabla... :P

Þangað til ? - Bergþóra óbloggari.. :( :cry:


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 20:24:29 / Bergþóra

Titill - Enginn

Ég er ekki alveg í sambandi hérna en ætla samt að blogga því þá get ég tekið mér pásu frá herbergistiltektinni minni.. sem er reyndar varla byrjuð ;).. Er búin að henda öllum fötunum sem lágu á gólfinu uppí rúm og mitt síðasta verk verður að henda þeim inní skáp, kassa og þvott svo ég verð að klára þetta áður en ég fer að sofa því þessi föt deila ekki rúmi með neinum :P!
Svo held ég líka að ég hafi fundið nýja skordýrategund þegar ég lyfti grjónapungnum mínum upp áðan, ég ætla að senda hana í skoðun í náttúrulífstofnunina eða það þarna :lol:

Svo er ég í fríi í vinnunni á morgun oig það er bara eins gott að það verði jafngott veður  þá og síðustu daga því ég hef ekki fengið að njóta Íslandssólarinnar neitt í sumar fyrir utan 17. og 18.júní.. :P Ætla að fara um leið og ég vakna í sund og baða mig í sólinni :D

Jæja, ég og Fjóla tókum spólu í gær, eina aðeins of tíbíska stelpumynd sem heitir "Sleepover" ekkert rosa spes en ágæt svona .. æj hvað  er ég að segja hún var bara ekkert spes ! :P Svo tókum við "Afraid of the dark" og hún var alveg horror.. eða þá meina og svona leiðinleg :P Ég allavega sofnaði yfir henni enda ekkert nema rugl.. :evil:

Jæja ég er ekki frá því að ég þurfi að fara að reyna að taka til þetta drasl og rusl í herberginu mínu.... :( Og ATH öll hjálp þegin!!! :D

Þangað til næst - Bergþóra The tiltaker ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2005 20:39:46 / Bergþóra

Fótaþreyta ..

Hvað ætli það þjáist margir af fótaþreytu í lok vinnudagsins?.. Allavega hún Bergþóra, það er víst ;).. Var að vinna frá kl 9-20 og mín er eilítið þreytt.. eigilega bara alveg að leka niður.. Og aftur að vinna á morgun frá 9.. Öss.. :P Fara að sofa núúúúna..:P

Ohh síðasti þátturinn af Silvíu Nótt var í gær, rosa sorglegur ;) "Fólk bara að segja á götunni að ég sé tík.. Fólk er bara sjálft tíkur.. :cry:" "Nei þetta er ekki síðasti þátturinn!!! Ég ætla að hringja í pabba og segja honum að þú sért vondur við mig :( " Heheh.. :D Yndislegt, frekar fyndið dæmi :P ! Fjóla Signý farin að fíla þetta vúhú og ég er ekki frá því að Laufey hafi hlegið eilítið af henni líka þó að hún hafi nú ekki verið til í að viðurkenna það.. ;)

Haha ég verð að segja ykkur frá einu sem mér tókst að gera í dag!! :P Það var einn maður að kaupa svona humar í poka örugglega einhver 3-4 kg.. Og ég alveg já tók pokann og ætlaði að fara að skanna hann.. Neinei, var hann ekki opinn og humar útum ALLT borðið hjá mér!!.. Eigum við eitthvað að ræða það hvað ég roðnaði!! .. :$ En það reddaðist eins og allt annað ;).. Svo finnst mér að þið eigið að vera duglegri að koma að versla hjá mér!!.. :P Það er ekkert gaman að afgreiða bara þá sem maður þekkir ekkert :lol:

En jæja.. Ég er ekki frá því að sturta sé málið.. og jafnvel bara að leggja sig örlítið í sturtunni.. Eða eitthvað ;p Þannig að..

Þangað til næst - Bergþóra fótaþreytta :P

Ps.. Á einhver svona sláttuprik til þess að lána mér? Mér sýnist pabbi ekkert ætla að gera í þessum garði, svo ég verð að taka til minna ráða ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.07.2005 21:15:33 / Bergþóra

Okeeeeeeeeey..

Þa, þa, það sem ég vildi sagt hafa.. Ég held að þið ættuð að forða ykkur, Hroði er að koma!!.. (Feita dúfan í fuglastríðinu :lol: ) .. Heyriði annars.. Haldiði að við séum í einhverri hættu þið vitið með þessa Al kvaída kalla? Ég meina af því að við studdum Íraksstríðið og allt það.. Eða.. gerðum við það annars ekki.. ? Æji ég er ekki alveg nógu vel að mér í þessum málum.. :P En samt erum við svo lítið sker útí buska að ég er ekki viss um að þessir karlar viti að við séum til.. ;)..

Úff moi er þreyyytt.. Var að vinna á afmælisdaginn, sunnudaginn, mánudag og í dag hljóp ég um leið og ég var búin að afgreiða grilljón manns, fara körfuhring, taka niður fánana, þrífa nokkra kassa og gera heimsmet í að vera fljót að sameina brauð í Leikbæ og taldi dótið þar.. :haha: Var ossalega gaman, og var að koma heim núna og langar mest að fara að lúlla mig núna.. :) Er samt í fríi á morgun mmm elskaða :D.. En svo vinna á fimmtudaginn, Björgvin sagðist ætla að bæta á mig vinnu og mín var ekki lengi að samþykkja það, ein ekki að hugsa með hausnum heldur debetkortinu..;).. heh..

Hey! :P Skellti mér í bíó á sunnudaginn með Baldri, Fjólu Signýju, Heiðrúnu og 234 selfyssingum í viðbót í Smárabíó á þarna.. Amityville horror? Held að hún heiti það.. og mér fannst þetta bara nokkuð góð mynd, var samt ekki alveg jafn hrædd og sumir.. ;) En hún er sannsöguleg svo það gerir hana enn meira krípí.. En allavega bara mæli með henni, hjartað tekur heljarstökk nokkrum sinnum í myndinni..:) Ekki skemmir fyrir hvað hann er flott vaxinn gaurinn..;)

Ohh ég er búin að skemma símann minn.. :(! Er bara búin að eiga hann í einhverja 2-3 mánuði og ég held að ég hafi kastað honum of fast í Fjólu eða eitthvað því núna er hann alltaf að frjósa og slökkva á sér og kveikja á sér og arg pirr.. Varð svo pirruð í gær að ég henti honum útí garð og lét pabba sækja hann ;).. Er með gamla símann minn núna og takkarnir eru tregari en allt!! :evil: en jæja hætt að kvarta ;)

En jæja, ég ætlaði bara að láta vita að ég væri enn á lífi.. :D

Þangaið til næst - Bergþóra símaskemmari..


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2005 11:20:51 / Bergþóra

AFMÆLI :D:D:D

Hún á afmælí dag, hún á afmælí dag hún á afmæl'ún Bergþóra :D:D:D! Vúhú !!!.. Semsagt klukkan ca 9:50 fyrir 16 árum síðan leit hún Bergþóra fyrst dagsins ljós og gerði heiminn að betri staaa... já okey blabla ;)

En þetta er annars alveg hinn merkilegasti dagur.. Hérna eru smá sýnishorn yfir það sem er að gerast í dag..

# Ég á afmæli :D

# BiBBi (síminn minn) og síminn hennar Steinunnar eiga afmæli :P

# Helgi fyrri ædolstjarnan.. Helgi Rafn held ég að hann heiti, hann á afmæli í dag :D:P

# Sálin er að spila í Hvíta húsinu í kvöld..:)

# Harry potter kemur/kom út í dag :D:D:haha:

# Gay pride er í kvöld.. ;)

# Fashion week tískusýningin er í kvöld.. ;)..

# Pabbi hennar Berglindar á afmæli í dag heh ;)

# Einn dagur síðan ég kom frá DK :D

Jæja... ég man ekki meira...:P En þetta er líka alveg nóg, alveg feikimerkilegur dagur ójá..:D En ég er sumsé komin heim frá DK og mikið gaman af því, þar var mikið stuð og mikið keypt og farið á strikið, í Tívolíið, í Legoland, í Árhús, í sólbað, í fótbolta og dimmalimm.. í búðir.. og bara alls konar..:D Fínasta veður allan tímann, enginn rigning nema þegar við komum og fórum :P..

Jæja, annars er ég að hugsa um að fara að  njóta afmælisdagsins mín og bjóða sjálfri mér uppá ís ;) !!.. Hehehe...

Þangað til næst - Bergþóra afmælisbarn :D


» 51 hafa sagt sína skoðun

05.07.2005 19:41:32 / Bergþóra

Jahérna hér !!!..

Bergþóra fékk í dag VÆGT sjokk.. ójá hún var í mestu makindum að afgreiða og hvað haldiði að hún hafi séð? Ég leit svona rétt útum gluggann og guess who's there! Jón Sigurðsson!!! Ég fékk áfall 8|.. Hjartað í mér fór bara í stopp og ég bara kófsvitnaði þarna og datt alveg út.. ;) Eða svona heh ;) Mér leið allavega eins og svona 12 ára gelgju að sjá Brad Pitt :haha: Ég fékk samt ekki að afgreiða hann .. :( Var rosa sár.. :/:P

En svo við ræðum nú aðeins meira um vinnuna mína af því að það er svo gaman ;) Þeir sem þekkja Bergþóru vita að hún er heldur seinheppin og eigilega bara algjör auli :P Á föstudaginn síðasta gekk algjörlega allt á afturfótunum !!.. Það er var ekkert smá mikið að gera enda föstudagur og fyrsta helgin í júlí.. Og ætla ég að telja upp það sem ég gerði þennan dag sem ég hefði kannski betur mátt sleppa ;)

# Ég var að fylla á sultur og  og rakst í eina sultuna og hún fór beint í gólfið og smallaðist og það fóru bláberjasulta og glerbrot útum allt.. !! :S

# Ég var að fylla á krydd og var að reyna að ná uppí efstu hillu (gekk ekkert rosa vel enda ekki sú stærsta..) og togaði einhvernveginn í aðra hillu og togaði hana hálfa útúr rekkanum og 73645 krydd hrundi á gólfið heh..:lol:

# Það er kona sem kemur oft og kaupir svolítið mikið af hverri vöru svo hún réttir mér alltaf bara eina og segir hvað hún er með margar svoleiðis. Og ég afgreiddi hana og alltí góðu.. svo kom hún aftur svona 7 mínútum seinna og alveg heyrðu ég var bara með 5 pastarétti, ekki 105.. 8| Halló Bergþóra!!!... Hún semsagt borgaði 100 pastaréttum of mikið heh ;)

# ÞAð var kona sem kom á kassann hjá mér með rauðkál og jújú.. það brotnaði og útum alllllt.. :P

# Og það var kona sem var með kókkippu svona 24 ltilarflöskur og hún var að rétta mér hana og þá sprakk ein kókin og bara kók lak útum allt!! Allan kassann og gólfið og alles og ég stóð í kókpolli það sem eftir var dags ógeðslega klístruð :S..

Ég man sannast sagna ekki meir en það hefur pottþétt verið eitthvað meira ;)

Hey svo fannst í gær taskan frá fimleikadeildinni sem ég er buin að vera að auglýsa hérna öðru hverju heh ;) Og síminn!.. Ég vildi að ég gæti sagt að hún hefði verið einhversstaðar í Kanada eða eitthvað en neeee hún var inní skáp :$:$:P

En ég þarf að fara að pakka niður, Danmörk á morgun ;):P BAra ef ykkur langar að vita í hvað ég er að fara..

Today Tomorrow Thu Fri Sat
sky: showers


Rain

High: 66°
Low: 56°
sky: showers


Rain

High: 67°
Low: 58°
sky: showers


Showers

High: 69°
Low: 56°
sky: showers


Light Rain

High: 72°
Low: 57°
sky: showers


Light Rain

High: 72°
Low: 58°


Vúhú!!! ;).. hahaha.. Hversu tíbískt..?

Þangað til næst - Bergþóra Danmerkurfari ;)


» 45 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 79804
Klukkan
Könnun
Er óvenjulegt að telja tærnar á sér í hvert skipti sem maður fer í sokka?