Og hvað haldiði að mér hafi tekist að gera?..Ég
tók upp jógúrt sem var í vitlausri hillu inná kæli
og viti menn, auðvitað var það opið...
Og það skvettist... og ekki
bara yfir mig heldur yfir bókstaflega
allt sem það hefði getað farið yfir!! Það fór yfir
peysuna mína svo hún angaði af
jógúrti allan daginn, á buxurnar mínar,
sokkana og inná inniskóinn, yfir
gólfið sem ég þreif reyndar bara, yfir fullt af
mjólkurfernum semtók hellingsstund að þrífa, yfir
mjólkurgrindurnar,eins mikið á milli rimlanna og
hægt var, svo ég yrði nu areiðanlega 2 ár að þrífa það, svo á
merkisspjöldin, vegginn o.s.frv..
Samtals tók það mig áreiðanlega ca korter a þrífa þetta upp og það
var ekki heitt.....
Það var eitt stykki svona kvikindi...ótrúlegt hvað innihaldið
er miklu meira en það lítur út fyrir!!..
Annars er ég bara í rólegheitunum á Akureyri
núna.. Hitti Magneu áðan fyrir tilviljun í
Hagkaup, ótrúlegt hvað maður hittir alltaf alla þar ;þ.. Ætla að
reyna að hitta svo eitthvað af stelpunum í kvöld og á morgun, fara
svo í jarðarför á morgun,og svo á leikrit á
sunnudaginn sem litla systir mín er að leika í..
Voða
kósí... Og hverju ætli Bergþóra hafi
gleymt á Selfossi? Júuuú,
hleðslutæki fyrir símann..
Hey, það hafa allir séð Bubble boy, right? Ég
ætla að sækja um svona kúlu eins og hann er í..
Ekki af því að ég er með ofnæmi fyrir öllum heiminum, heldur vegna
þess að ég er svo mikill klaufi að það ætti helst
að geyma mig í svoleiðis dýri.. Ég er óþolandi
mikið alltaf að meiða mig.. Væl-væl-væl..!!
Okey,ég er hætt.. Hey, ég verð að segja frá einu enn.. Ég og
Baldur vorum á leiðinni í bæinn áðan, hann var að
skutla mér ávöllinn (btw ömurlega afgreiðsla á
flugvellinum...!) og gott ef við sáum ekki bara
árekstur og urðum næstum hluti af hnonum, það var
bíll sem var að keyra á móti okkur, fórá vitlausan
vegar helming og framan á 2 bila, bílana fyrir framan okkur.. Svo
sáum við bara bílinn stefna hálfpartinn að okkur,
bögglaðan og bramlaðan, en
sáum engan bílstjóra né farþega, bara 2 loftpúða þar sem þau hefðu
átt að sitja.. Náðum að sveigja
frá og bíllinn stoppaði.. sem
betur fer vorum við á lítilli ferð, annar hefði farið verr....

En Idol plús...! 
Þangaðtil næst -Bergþóra sem missti sig og gerði way too
langt blogg..